Saga Bæjarbókasafnsins


Bæjarbókasafn Ölfuss er almenningsbókasafn og hóf starfsemi árið 1965. Þá var bókastofninn 119 bækur sem voru arfur frá Lestrarfélagi Þorlákshafnar en það var starfrækt hér á meðan Þorlákshöfn var verstöð.

Bókunum fjölgaði í 209 fyrsta haustið sem það starfaði. Útlán binda voru 242 bindi fyrsta árið. Fimm árum síðar voru útlán 1.212 og bækurnar orðnar 876. Áramótin 1990 voru bækurnar 5.786 og 5.083 bindi voru lánuð á árinu. Í lok árs 2004 var safnkostur kominn yfir 27 þúsund.

Á árunum 1977-1982 var rekstur hrepps- og skólabókasafna sameiginlegur og var hreppssafnið í upphafi til húsa í skólanum. Frá árinu 1982 var ákveðið að reka sameiginlegt bóka- og minjasafn sem hlaut nafnið Egilsbúð og var til húsa að Unubakka 4. Árið 2002 var bókasafninu komið fyrir á jarðhæð Ráðhúss Ölfuss í Þorlákshöfn, en þá hafði húsið sem áður var félagsheimili, verið tekið í gegn og við það byggt.


Eftir Árný Leifsdóttir 1. apríl 2026
Barnamenningardagar á Suðurlandi!
Eftir Árný Leifsdóttir 24. mars 2026
This is a subtitle for your new post
27. janúar 2026
Turninn í tímabundnu fríi
27. janúar 2026
Viltu skipta út gömlu öskudagsbúningum fyrir nýja?
Eftir Árný Leifsdóttir 1. apríl 2026
Barnamenningardagar á Suðurlandi!
Eftir Árný Leifsdóttir 24. mars 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Árný Leifsdóttir 1. apríl 2026
Barnamenningardagar á Suðurlandi!
Eftir Árný Leifsdóttir 24. mars 2026
This is a subtitle for your new post
27. janúar 2026
Turninn í tímabundnu fríi
27. janúar 2026
Viltu skipta út gömlu öskudagsbúningum fyrir nýja?