Fréttir & tilkynningar

Barnamenningardagar á Suðurlandi!

Nú stendur yfir undirbúningur fyrir Barnamenningardaga sem öll sveitarfélög á Suðurlandi taka þátt í, með stuðningi SASS. Af þessu tilefni verða ýmsir viðburðir í boði dagana 20.–23. apríl og verður hápunkturinn skemmtileg fjölskyldudagskrá á sumardaginn fyrsta.

Í tengslum við Barnamenningardaga stendur nú yfir ljósmyndakeppni. Nánari upplýsingar má finna á olfus.is og bokasafn.olfus.is. Það er kjörið að nýta páskafríið til að taka skemmtilegar myndir af sveitarfélaginu okkar, en skilafrestur er til 7. apríl.

Verið er að leggja lokahönd á dagskrána og hvetjum við alla til að gefa sér þá sumargjöf að eiga notalegar og skapandi stundir með börnunum. Meðal þess sem verður í boði er myndlistarsýning barna, smámunalistsköpun fyrir alla, tungumálakaffi, sundlaugarpartí, lautarferð í skrúðgarðinum, sögustund og hæfileikakeppnin Stjörnustælar!

Fylgist með – dagskráin er á leiðinni!