Útlánareglur
Árgjald greiðist einu sinni á ári. Framvísa þarf persónuskilríkjum þegar sótt er um lánþegaskírteini. Gegn því getur notandi haft að láni allt að 30 safngögn í einu og fengið aðgang að Rafbókasafninu.
Börn yngri en 18 ára, nemendur í framhaldsskóla, öryrkjar og ellilífeyrisþegar greiða ekki árgjald. Öryrkjar þurfa að framvísa örorkuskírteini.
Börn yngri en 18 ára þurfa ábyrgð foreldra eða forráðamanna til þess að stofna skírteini. Eyðublöð má nálgast í afgreiðslu bókasafnsins. Eingöngu er hægt að fá efni ætlað börnum að láni út á barnaskírteini.
Framvísa þarf lánþegaskírteini þegar safngögn eru fengin að láni. Skírteinishafi getur einn tekið að láni safngögn á lánþegaskírteini sitt og ber ábyrgð á öllum safngögnum sem hann tekur að láni.
Bækur, hljóðbækur og tímarit lánast jafnan út í 30 daga í senn en þó eru nýjar bækur á 14 daga láni fyrstu mánuðina auk þess sem tímarit eru eingöngu til afnota á safni. Útlánstími á spilum er 7 dagar.
Hægt er að endurnýja útlán á safngögnum allt að þrisvar sinnum ef ekki liggja fyrir pantanir frá öðrum lánþegum. Notendur geta endurnýjað útlán sjálfir á www.leitir.is eða óskað eftir endurnýjun í gegnum síma eða með tölvupósti.
Verði vanskil reiknast dagsektir skv. gjaldskrá.
Glatist safngögn eða skemmist þarf að greiða bætur auk dagsekta sé um þær að ræða.
