Fréttir & tilkynningar
Viltu skipta út gömlu öskudagsbúningum fyrir nýja?

Það styttist í öskudaginn og því kjörið að nýta tækifærið til að skiptast á búningum fyrir börnin á skiptimarkaði sem haldinn verður í Versölum fimmtudaginn 4. febrúar á milli kl. 17 og 20. Hægt er að koma með alls kyns varning sem nýtist ekki lengur á heimilinu t.d. fatnað, skó, íþróttabúnað, húsgögn, raftæki, bækur og annað sem fólk er tilbúið að gefa eða skipta út fyrir eitthvað annað. Hver og einn er svo ábyrgur fyrir því að taka saman á sínu svæði að markaðinum loknum.
Það er ókeypis að taka þátt og hægt er að bóka pláss á bokasafn@olfus.is